Leita í fréttum mbl.is

Hvers vegna Atla Gíslason á þing?

 Kosningabaráttunni er að ljúka. Á laugardag verður ljóst hverjir verða þingmenn Suðurkjördæmis. Í þeim hópi verða margir góðir einstaklingar úr öllum flokkum. Ég leyfi mér sérstaklega að mæla með því að við tryggjum að nýr þingmaður verði kosinn í þann hóp. Þessi maður er Atli Gíslason.Rök mín fyrir því að Atli eigi mikilvægt erindi á Alþingi eru m.a. eftirfarandi:

v    Atli er afar hæfileikaríkur og harðduglegur maður. Um það ber öllum saman sem honum hafa kynnst.

v    Atli hefur ríka réttlætiskennd og hefur sýnt það í störfum sínum að hann er öflugur talsmaður launafólks og félagslegs jafnréttis á öllum sviðum.

v    Atli vill stuðla að öflugri og fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu í sátt við umhverfi og náttúru í stað gegndarlausrar stóriðjustefnu. Hann vill skapa á nýjan leik hagstæð skilyrði til nýsköpunar í atvinnulífinu.

v    Atli vill jafna aðgang að menntun sem er öflugasta tækið til að jafna kjör landsmanna.

v    Atli vill eflingu sveitarfélaganna í landinu með því m.a. að ríkið tryggi þeim sanngjarnan hlut af sköttum landsmanna. Þannig verði best tryggð skilyrði til að bæta þróunarskilyrði mannlífs, atvinnulífs og byggðar um landið allt. 

v    Atli hefur sérstaklega sett sig vel inn í þau mál sem snerta Vestmannaeyjar og þess vegna gerir hann sér glögga grein fyrir hver helstu hagsmunamál okkar Vestmannaeyinga eru nú og á komandi árum.

Af þessum ástæðum og fjölmörgum öðrum veit ég að með því að kjósa Vinstri græn í kosningunum á laugardaginn tryggjum við þingsæti manni sem sannarlega á erindi á Alþingi, manni sem standa mun dyggan vörð um þau meginatriði sem ég hef nefnt hér að ofan ásamt fjölmörgum öðrum. Við getum treyst því að Atli Gíslason stendur vel fyrir sínu og styður okkur af fullum krafti í að gera Vestmannaeyjar að betra samfélagi til framtíðar.                         Ragnar Óskarsson  


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ragnar Óskarsson
Ragnar Óskarsson
Framhaldsskólkennari
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband